PRX-T33
PRX-T33 er nálarlaus meðferð sem virkjar endurnýjunar- og viðgerðarferla húðarinnar án þess að skaða hana.
PRX-T33 er fyrir bæði kynin og alla aldurshópa, bæði notað í fegrunarskyni eða sem meðferð við örum, slitum, litabreytingum eða til þess að draga úr eða fyrirbyggja öldrun húðarinnar.
PRX-T33 húðmeðferð örvar endurnýjun húðfrumna og virkni þess nær djúpt í húðina (dermis) þar sem viðgerðar-og endurnýjunarferlin eiga sér stað. Virkni þess nær djúpt í undirlag húðarinnar án þess að skaða yfirborð og valda aukaverkunum eins og flögnun.
PRX-T33 er fullkomin lausn fyrir þá sem vilja mikinn árangur en lítið inngripi (nálarlaust) og lítinn sem enginn batatíma. Meðferðin á ekki að raska daglegu lífi, veldur ekki ljósnæmi og því hægt að framkvæma allan ársins hring.
Innihald lausnarinnar:
PRX-T33 er betrum bætt útgáfa af TCA tríklórediksýru sem hefur lengi verið notuð í húðmeðferð, með mjög góðum árangri en hingað til hefur batatíminn verið langur og aukaverkanir miklar.
PRX-T33 inniheldur blöndu af tríklórediksýru, vetnisperoxíði og kojínsýru. Efnið smýgur djúpt og verkar á húðþekjulagið niður í grunnlagið og örvar það nýmyndun og endurnýju húðarinnar.
Vetnisperoxíð verndar yfirborð húðarinnar þannig að húðin flagnar ekki eða bólgnar eftir meðferðina. Húðin verður ekki eins viðkvæm fyrir sól og eins við hefðbundin peel og þess vegna hentar þessi meðferð allan ársins hring.
Mesta virknin er í undirlaginu þar sem viðgerðar- og endurnýjunarferlin eiga sér stað, örvar nýmyndun kollegen, elastín og vaxtarþætti svo að húðin þéttist og stinnist. Það er einnig skýringin á því hvers vegna hámarksárangur tekur allt að 4 mánuði en það er sá tími sem endurnýjun próteina, kollegens og elastíns getur tekið.
Kostir PRX-T33 meðferðar:
Lítið inngrip engar stungur eða nálar
Lítil ef einhver flögnun eins og við hefðbundin Peel
Nær enginn batatími ef það er einhver.
Þolist vel hjá öllum húðgerðum
-Sársaukalaus (getur aðeins sviðið hjá þeim sem eru mjög viðkæmir)
Hægt að framkvæma yfir hásumar, ekki viðkvæmni gagnvart sól
Hentar með öðrum húðmeðferðum eins og Profhilio, fylliefnum og bótoxi
Er mjög góð meðferð til þess að viðhalda og fyrirbyggja heilbrigði húðarinnar.
Þessi meðferð hentar öllum sem vilja fá stinnari, heilbrigðari, ferskari og fallegri áferð á húðinni sem og að fyrirbyggja öldrun.
Hvernig fer meðferðin fram?
PRX-T33 er borið á hreina og þurra húðina. Meðferðaraðili fylgist vel með hvernig lausnin þolist. Lausninni er nuddað inn í húðlagið með nokkrum endurtekningum. Að lokum er húðin þvegin vel og góður raki borinn á húðina..
Meðferðin tekur u.þ.b. 20 mín
Batatími er lítill ef einhver
Endingartími er 7-9 mánuðir
Árangurinn kemur mjög fljótt en hámarksárangur tekur allt að 4 mánuði
Mælt er með 3-5 skiptum með a.m.k viku millibili og síðan viðhaldsmeðferð eftir þörfum.
Hvað þarf að hafa í huga fyrir PRX-T33 meðferð?
Sleppið notkun á ávaxtasýrum eða retinol kremum í 2 vikur fyrir meðferð.
Ef einstaklingur er gjarn á að fá tíðar frunsur er gott að taka fyrirbyggjandi frunsulyf við þeim fyrir meðferð og svo 12 klst eftir hana.
Það er gott að bera feitt krem á nasirnar kvöldið fyrir meðferðina til þess að minnka líkurnar á bruna. En það svæði er viðkvæmt.
Ekki vaxa eða raka húðina áður en komið er í meðferðina.
Eftir eina meðferð af PRX-T33
Eftir 5 skipti af PRX-T33
Hrukkur og línur í Andliti
Eftir 6 skipti af PRX-T33
Húðslit
Eftir 5 skipti af PRX-T33
Impetigo ör
PRX-T33 er einnig notað við húðvandamálum eins og:
Örum
Litabreytingum
Melasma
Húðslitum
Þurri húð
Öldrun húðarinnar; bætir þéttleika og ljóma
Vinnur á hrukkum og fínum línum.
Minnkar ásýnd svitaholna
PRX-T33 var upphaflega þróað sem meðferð við örum hjá börnum, en hefðbundnar TCA sýrur eru með miklar aukaverkanir. Þetta er bylting í meðferð á örum, slitum og slappri húð því nú ert hægt að nota þessar kröftugu sýrur án vandkvæða.
Frábending:
Einstaklingar með virka frunsu.
Einstaklingar sem eru með mjög viðkvæma húð, vegna mikla bólgusjúkdóma eins og rósroða, flösuexem í andliti og perioral dermatitis (bregst húðin kröftuglega við mildum ávaxtasýrum).
PRX-T33 hefur reynst mörgum með rósroða vel en hentar ekki þeim sem eru mjög viðkvæmir.
Eftir PRX-T33, hugsanlegar aukaverkanir:
Væg húðflögnun fyrstu 2-3 dagana eða þurrkur sérstaklega á eldri húð og hjá þeim sem eru með þurra húð fyrir. Gott er að bera gott rakagefandi krem reglulega eftir meðferð.
Dökkir flekkir í húðinni fyrst á eftir. Það eru litabreytingar sem voru til staðar en eru að koma betur á yfirborðið. Fer á nokkrum dögum.
Húðerting, roði ef húðin er mjög viðkvæm til dæmis með rósroða. Margir upplifa vægan roða sem fer fljótt.
Mikilvægt að bera reglulega góðan raka á húðina og jafnvel nota Mildison fyrir þá sem eru viðkvæmari.