Pólýnúkleótíð (polynucleotides) eða PDNR eru lífræn efni, langar keðjur af DNA sem er oftast unnið úr sæði laxafiska.
Húðfrumurnar okkar skynja pólýnúkleótíðin sem ,,viðgerðarskilaboð” Þetta kallar á örvun á fibroblöstum sem eru frumarnar sem framleiða kollegen, elestín og hyalúrónsýru.
Rannsóknir hafa sýnt að Pólýnúkleótíð:
Örva frumuvöxt og endurnýjun húðfruma
Bæta rakastig húðarinnar
Eykur teygjanleika húðarinnar
Bætir áferð og minnkar fínar línur
Dregur úr bólgum og roða
Styrkir húðina og gefur henni heilbrigðan ljóma.
Pólýnúkleotíð -PDNR
Pólýnúkleótíð er góð fyrir:
Þreytta og líflausa húð
Viðkvæma húð t.d rósroða
Húð sem er gjörn á að fá bólur.
Þroskaða húð sem þarf örvun og styrkingu
Sem fyrirbygging og til þess að viðhalda
Endurnýjar húðina á náttúrlegan hátt án fylliefna
Hentar sérstaklega vel þar sem húðin er þunn og viðkvæm; eins og augnsvæðið.
Frábending:
Ofnæmi fyrir fisk
Ólétta eða brjóstagjöf
Sýkingar á meðferðarsvæði
Blóðstorkutruflanir
Hvernig og hvar?
Húðin er hreinsuð og oftast er notað deyfigel sérstaklega við meðhöndlun á viðkvæmum svæðum eins og í kringum augun.
Pólýnúklíðin er svo sprautað í yfirborð húðarinnar með mjög fínum og stuttum nálum. Vinsælustu svæðin eru:
Augnsvæðið
Andlit
Háls
Bringusvæði
Besti árangurinn næst með því að endurtaka meðferðina 2-4 sinnum með 4 vikna millibili
Við hverju má búast…
Eftir meðferðina má búast við roði, bólga, mar eða eymsli geti komið fram.
Lítil bólgnar punktar (eins og litlir moskítóbit) geta sést í 1–3 daga.
Bólgu og roða á stungustöðum – gengur oftast til baka innan nokkurra klukkustunda til 1 dags
Smávægilegu mari, sérstaklega ef húðin er viðkvæm eða meðferðarsvæðið æðaríkt.
Hvenær má búast við að sjá árangur?
Margir finna fyrir meir mýkt, raka og ljóma eftir nokkar daga en endurnýjunin fer fram á næstu vikum og byggist upp hverri meðferð.